Nýr vörulisti frá Cole Parmer með 65.000 vöruliðum og þar af 11.000 nýjum!
Í vörulistanum, sem er 2128 síður, eru upplýsingar um tæki og búnað frá Cole Parmer og öðrum viðurkenndum framleiðendum á tæknibúnaði. Hann er ómissandi uppsláttarrit fyrir alla þá sem stunda rannsóknir og aðra tæknivinnu.
Í vörulistanum eru greinagóðar upplýsingar um tækjabúnaðinn og að auki aðrar tækniupplýsingar s.s. um efnaþol og aðra eiginleika plastefna og málma, umreiknistuðlar, framleiðslustaðlar o.fl.
Við hjá Kemíu getum einnig boðið vörur sem ekki eru sýndar í listanum. Samtals getum við boðið 125.000 vöruliði frá Cole Parmer. Við fáum reglulega vörur með flugi frá Cole Parmer. Einnig er mögulegt að fá vörurnar með hraðsendingu ef mikið liggur við.
Sölumenn Kemíu hafa menntun í verkfræði og raunvísindum og margra ára reynslu í rannsóknavinnu og þróunarstarfi. Við leiðbeinum viðskiptavinum um val á tækjabúnaði og öðrum vörum frá Cole Parmer.
Í svo stórum lista getur verið erfitt að finna það sem leitað er að. Til þess að létta þér vinnuna þá endilega hafðu samband við okkur og láttu okkur sjá um leitina. Sláðu á þráðinn eða sendu okkur tölvuskeyti. Við munum senda þér upplýsingar um vörurnar sem til greina koma ásamt verðtilboði.
Vinsamlega sendið mér ókeypis eintak af Cole Parmer vörulistanum.