Tunnu- og brúsadælurFLUX tunnu- og brúsadælur eru notaðar til þess að dæla úr tunnum, tönkum og öðrum ílátum. Þær samanstanda af mótor með áfastri dælu. Dælurnar geta verið úr mismunandi efnum allt eftir því hvaða vökva á að dæla. T.d. úr PP plasti til þess að dæla tærandi vökvum, ryðfríu stáli til þess að dæla leysum eða PVDF plasti til þess að dæla sterkum klór. Sérstakar dælur eru fáanlegar til þess að dæla seigum vökvum s.s. sýrópi eða málningu. Mótorarnir eru af ýmsum gerðum t.d. loftdrifnir eða neistaþéttir mótorar fyrir dælingu á eldfimum vökvum.
TunnudælurHentugar fyrir þunnfljótandi vökva, s.s. sterkar sýrur, eldfima leysa og klórlausnir. |
BrúsadælurLéttar dælur fyrir skömmtun á hreinsiefnum, sýrum og bösum úr brúsum og tunnum. |
SnigildælurHentugar fyrir mjög seiga vökva, s.s. sýróp eða málningu. |
Dælur fyrir matvælaiðnaðUppfylla hreinlætiskröfur í matvæla-, snyrtivöru- og lyfjaiðnaði. |
TankdælurFyrir tærandi vökva. Rennsli 7-75 m³/h Lyftihæð 33m Tankdýpi 0,3 til 4m. |
RennslismælarNákvæm skömmtun á allskyns vökvum úr tunnum og brúsum. |