Við starfsmenn Kemíu höfum eftirfarandi að leiðarljósi í okkar starfi:
Kemía er innflutningsfyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á tækjabúnaði og vörum fyrir rannsóknir og iðnað og þjónustu því tengdu.
Við kappkostum að bjóða hágæða vöru og að veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks þjónustu. Við stefnum að því að bjóða eingöngu vandaða vöru frá leiðandi framleiðendum á hverju sviði. Við veljum framleiðendur af kostgæfni og höfum samstarf við þá til langs tíma til þess að geta þjónustað viðskiptavini okkar áfram. Birgjar okkar skulu allir hafa vottað gæðakerfi eða vinna samkvæmt sambærilegu.
Við leitumst við að veita viðskiptavinum okkar skýrar og nákvæmar upplýsingar um þær vörur sem við höfum á boðstólum. Sölumenn Kemíu skulu hafa háskólamenntun á sviði raunvísinda og verkfræði og geta veitt faglega ráðgjöf um notkun vörunar í rannsóknum og iðnaði. Við reynum að tryggja að pantanir séu nákvæmar og berum þær undir viðskiptavini okkar til staðfestingar.
Við útvegum vörurnar eins hratt og kostur er en með lágmarks kostnaði. Við höfum samráð við viðskiptavini um flutningsmáta. Við gerum við eða útvegum viðskiptavinum okkar viðgerð á þeim tækjum sem við seljum.
Gæðastefna okkar skal vera í stöðugri endurskoðun með það markmið að uppfylla óskir viðskiptavini okkar í hvívetna. Ábyrgðamaður gæðastefnu okkar er Trausti Hauksson efnaverkfræðingur.