Matachana er með höfuðstöðvar í Barselóna á Spáni. Þar eru framleiddir stærri dauðhreinsiofnar. Framleiðslan fer einnig fram Í Köln í Þýskalandi þar sem minni ofnar og stjórnbúnaður er framleiddur.
Miniclaves Litlir dauðhreinsiofnar fyrir minni rannóknastofur, tannlækna og skurðstofur. Henta til dauðhreinsunar á áhöldum þar sem þau eru notuð.
Series SC100 og Series SC500 Meðalstórir dauðhreinsiofnar fyrir minni sjúkrahús. Einnig fyrir örverurannsóknir og lyfjarannsóknir.
Series S1000 og Series S2000 Stórir dauðhreinsiofnar fyrir miðlægar dauðhreinsideildir (CSSD) og stór sjúkrahús . Landspítalinn (LHS) notar slíka ofna í dauðhreinsideild sinni sem þjónar öllum deildum spítalans á höfuðborgarsvæðinu.
Lághitaofnar Dauðhreinsiofnar sem nota formaldehýð til þess að sótthreinsa viðkvæman búnað
Fylgihlutir Fyrir stærri ofna er fáanlegur sjálfvirkur hleðslu og losunarbúnaður. Einnig framleiðir Matachana ýmsan annan búnað fyrir sjúkrahús s.s. krufningaborð, þvottavélar, dreifingarkerfi fyrir mat o.f.l
Sölumenn Kemíu veita svör við frekari spurningum um Matachana.