OHAUS hefur framleitt vogir fyrir skóla, rannsóknir og iðnað í nær eina öld. Ohaus framleiðir nú greiningarvogir með nákvæmni upp á 0,01 mg, rannsóknavogir, ferðavogir og iðnaðarvogir sem taka allt að 1500 kg.

Allir íslendingar kannast við Ohaus skólavogirnar, sem notaðar hafa verið í íslenskum skólum í efna og eðlisfræðikennslu í áraraðir. Þær eru enn fáanlegar ásamt nýjum vogum til kennslu sem byggjast á nýjustu tölvutækni.

Rakavogirnar frá Ohaus eru hannaðar til að mæla rakamagn, fljótt og örugglega á sem ódýrastan máta. Þær nota hágæða halogen hitara ásamt nákvæmri vigtun og skila fljótri og nákvæmri niðurstöðu um rakamagn. Vogirnar vinna sjálfvirkt og fela því í sér vinnusparnað í gæðaeftirliti.

Ohaus MB35 rakavogin er einföld rakavog sem hentar vel í daglegt gæðaeftirlit í iðnaði.

Ohaus MB45 rakavogin gefur hámarks nákvæmni í rakamælingu á góðu verði. MB45 birtir nákvæmari upplýsingar um niðurstöður mælinga. Vogin er tilvalin í gæðaeftirlit fyrir þá sem vilja tryggja hámarks gæði í framleiðslu.

Sölumenn Kemíu veita svör við frekari spurningum um Ohaus vogir.


Greiningavogir

Ferðavogir

Rakavogir