YSI framleiðir mælitæki
fyrir rannsóknir á lífríki vatna sem og mælingar í fiskeldisvatni eða frárennslisvatni frá byggð.
Súrefnismælarnir frá YSI hafa um árabil
verið notaðir í íslensku fiskeldi og líkað vel.
YSI framleiðir einnig fjölmæla til mælinga á súrefni,
seltu, sýrustigi og dýpi.
Fyrir vöktun á ýmsum efna og eðlisþáttum í vatni og sjó hefur YSI þróað
djúpprópur sem mæla og safna upplýsingum um
seltu, súrefni, sýrustig, blaðgrænu og fleiri þætti.
SonTek/YSI framleiðir rennslismæla fyrir
ár og skurði sem og mæla fyrir straummælingar í vötnum og sjó.
Endeco/YSI setur mælitækin saman í kerfi fyrir
fjargæslu á eðlis og efnaþáttum í lofti, vötnum og sjó.
Sölumenn Kemíu veita svör við frekari spurningum um mælitæki frá YSI.